Skrifstofa
Íbúðir
Umsókn
Upplýsingar
Tenglar
Heim


Vantar þig íbúð í Garðabæ ?

Stúdentagarðar sjá um útleigu á 14 námsmannaíbúðum fyrir Garðabæ sem eru staðsettar að Arnarási 9-11 í Garðabæ.

 

Um er að ræða 4 stúdíóíbúðir 45,5 m2, leiga á mán. 73.106 kr og hiti 2.131 kr, 6 tveggja herbergja íbúðir 54,2 m2,leiga á mán. 82.764 kr og hiti 2.414 kr, og 4 þriggja herbergja íbúðir 71,5 m2,leiga á mán. 99.034 kr og hiti 3.005 kr.

 

Leiguverð er hér birt miðað við vísitölu neysluverðs þann 1. júní 2010, 365,3 stig.

 

Innheimt er sérstaklega fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli og internettenging fylgir ekki með íbúðunum.

 

Sótt er um íbúðir skriflega á skrifstofu Stúdentagarða á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík.  Þar er einnig hægt að fá að sjá teikningar af íbúðunum. 

 

Biðlistar eru ekki gagnvirkir og því ekki unnt að fylgjast með stöðu umsóknar á netinu.Tilkynnt er um úthlutun símleiðis eða með tölvupósti.

 

Hægt er að nálgast úthlutunarreglurnar á vef Garðabæjar; http://gardabaer.is/Thjonusta-i-Gardabae/husnaedismal/namsmannaibudir.

Back
Notandi
Lykilorð
Tilvísunarnr.
FS - Stúdentagarðar • Háskólatorgi • Sæmundargötu 4 • 101 Reykjavík • Sími 570 0800 • fax 570 0709