Skrifstofa
Íbúðir
Umsókn
Upplýsingar
Tenglar
Heim


Ásgarðar
Fyrsta húsið í Ásgarðahverfinu var tekið í notkun 1993 en síðasta húsið kom svo í fulla notkun haustið 2003. Hverfið er að mestu ætlað einstaklingum og barnlausum pörum en þó eru íbúðir í Eggertsgötu 12 sem eingöngu eru ætlaðar fjölskyldum með 2 börn eða fleiri. Þar eru 10 3ja herbergja íbúðir, íbúðartegundir 4-1, 4-2 og 4-3. Í Eggertsgötu 16 - 34 eru svo eingöngu íbúðir sem ætlaðar eru einstaklingum og barnlausum pörum. Þar eru tvær tegundir einstaklingsíbúða, 5-2 ( 66 íbúðir-36 m2) og 5-7 (124 íbúðir í Eggertsgötu 24, 35 m2). Einnig eru þar 82 tvíbýli, íbúðartegundir 5-3 og 5-5 (29 m2). Í tvíbýlum búa tveir einstaklingar, hvor hefur sitt herbergi en þeir deila með sér baði og eldhúsi. Húsgögn fylgja tvíbýlum á Eggertsgötu 18 og 22 ( íbúðarteg. 5-5). Í Ásgörðunum eru svo 76 paríbúðir, íbúðartegund 5-1 (58-63 m2). Að Eggertsgötu 32 er íbúð fyrir fatlaðan einstakling eða par og í Eggertsgötu 24 eru 4 íbúðir sem hannaðar eru fyrir fatlaða einstaklinga. Allar íbúðir hafa aðgang að tölvuneti HÍ. Ísskápar og ljós fylgja öllum íbúðum, geymslur og sameiginlegt þvottahús er í hverju húsi.

Leigusamningar á Ásgörðum eru gerðir til 12 mánaða í senn þ.e. frá 1. sept. til 31. ágúst ár hvert.

Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".
Ásgarðar
   

.........

Gamli Garður
Gamli Garður var tekinn í notkun árið 1934 en haustið 1995 var hann gerður upp og eru nú 43 herbergi (12 m2) fyrir einstaklinga á garðinum. Í hverju herbergi er rúm, skrifborð, skrifborðsstóll, fataskápur, hillur, vaskur, sími og tölvutenging (beintenging við tölvu HÍ). Húsið er tvær hæðir, kjallari og ris. Sameiginlegrar snyrtingar og eldhús búið eldhúsáhöldum er á hverri hæð og þvottahús og reiðhjólageymsla í kjallara. Sameiginlegt sjónvarpsherbergi er í risi þar sem ýmsar sjónvarpsrásir eru til staðar. Samkomusalurinn Garðsbúð er á fyrstu hæð.

Leigusamningar á Gamla Garði eru eingöngu gerðir til 9 mánaða í senn þ.e. frá 28. ágúst til 26. maí ár hvert.

Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".
Gamli Garður
      

.........

Hjónagarðar
Hjónagarðar voru teknir í notkun 1976. Í húsinu eru fjórar þriggja herbergja íbúðir (60 m2) og 51 tveggja herbergja íbúð (40 m2). Geymslur fylgja öllum íbúðum. Sameiginleg lesstofa, fullbúið þvottahús, samkomusalur, leiksvæði fyrir börn og hjóla- og vagnageymsla eru í húsinu. Ísskápar og ljós fylgja íbúðum. Á Hjónagörðum búa bæði fjölskyldur og barnlaus pör. Ekki er aðstaða fyrir þvottavélar í íbúðunum. Allar íbúðir Hjónagarða aðgang að neti HÍ.

Leigusamningar á Hjónagörðum eru gerðir til 12 mánaða í senn þ.e. frá 1. sept. til 31. ágúst ár hvert.

Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".
Hjónagarðar
   

.........

Skerjagarður

Skerjagarður er fjögurra hæða lyftuhús sem tekið var í notkun 1998 og 1999. Í húsinu eru 78 (29m2) einstaklingsíbúðir, þar af tvær íbúðir fyrir fatlaða einstaklinga. Í hverri íbúð er baðherbergi, geymsla og rúmgott herbergi með eldunaraðstöðu. Örbylgjuofn, eldavélahellur, ísskápur og ljós eru í öllum íbúðunum en rúm, eldhúsborð og 2 stólar fylgja að auki hluta þeirra (íbúðartegund 1-7). Ekki er aðstaða fyrir þvottavél í íbúðunum. Á fyrstu hæð hússins er rúmgott fullbúið þvottahús og reiðhjólageymsla. Allar íbúðir Skerjagarðs hafa aðgang að tölvuneti HÍ.


Leigusamningar á Skerjargarði eru ýmist gerðir til 12 eða 9 mánaða, 9 mánaða leigan er frá 28. ágúst  til 26. maí ár hvert.


Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".

Skerjagarður
   

.........

Skógargarðar
Skógargarðar eru nýir fjölskyldugarðar sem verða teknir í notkun í desember 2009 og í janúar 2010. Á Skógarvegi 18 og 22 eru samtals 38 þriggja herbergja íbúðir (70-80,7 m2) og á Skógarvegi 20 eru 33 tveggja herbergja íbúðir (59,9- 62,2 m2) og 9 þriggja herbergja íbúðir (70-80,7 m2). Í kjallara eru geymslur fyrir allar íbúðir. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í hverju húsi. Ísskápar og ljós fylgja íbúð og aðstaða er fyrir uppþvottavél í eldhúsi. Á baðherbergi eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt útsogi fyrir þurrkara. Ekki er sameiginlegt þvottahús í húsunum. Skógargarðar eru eingöngu ætlaðir fjölskyldufólki. Allar íbúðir Skógargarða hafa aðgang að interneti (í gegnum ethernet HÍ). Bílakjallari fyrir íbúa verður undir húsum og garði.

Leigusamningar á Skógargörðum verða gerðir til 12 mánaða í senn þó miðað sé við að þeir samningar sem gerðir eru nú renni út um miðjan ágúst 2010, þar sem samningstímabilið hefst nú á miðju skólaári. Frá og með miðjum ágúst 2010 mun samningstímabilið því verða frá miðjum ágúst ár hvert og fram í miðjan ágúst komandi árs.

Til að fá upplýsingar um verð, smellið á "meira" og til að sjá teikningar af íbúðunum smellið á „flash“.
      

.........

Skuggagarðar

Einstaklingsíbúðirnar í Lindargötu 42, 46 og 46A voru teknar í notkun haustið 2006. Eingöngu er þar um að ræða einstaklingsbúðir, íbúðartegund 6-1 (38,8m2), 96 íbúðir. Þar eru 3 íbúðir hannaðar fyrir fatlaða íbúa.
Allar íbúðirnar hafa aðgang að tölvuneti HÍ. Ísskápar og ljós fylgja öllum íbúðum, helluborð og örbylgjuofn. Geymslur eru í íbúðunum og sameiginlegt þvottahús er í Lindargötu 46A.


Haustið 2009 bættist við Lindargata 44, sem er 3ja hæða hús, nýstandsett. Í húsinu eru 4 leigueiningar, þ.e. eitt tvíbýli þar sem að tveir einstaklingar hafa eigið herbergi og deila svo eldhúsi og baði. Fyrir fjölskyldur eru svo ein 3ja herbergja íbúð og ein 3-4 herbergja íbúð. Allar íbúðirnar hafa aðgang að tölvuneti HÍ. Ísskápar og ljós fylgja öllum íbúðum ásamt eldavél. Geymslur fylgja öllum íbúðum, allar íbúðirnar hafa aðgang að sameiginlega þvottahúsinu í Lindargötu 46A eins og aðrir íbúar í Skuggagörðum en í fjölskylduíbúðunum er jafnframt aðstaða fyrir þvottavélar.


Leigusamningar í Skuggagörðum eru gerðir til 12 mánaða í senn þ.e. frá um miðjan ágúst ár hvert og fram í miðjan ágúst komandi árs.
Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".

   

.........

Vetrargarður
Vetrargarður var tekinn í notkun 1987-1989. Þar eru 59 tveggja herbergja íbúðir (50 m2), 30 þriggja herbergja íbúðir (58-64 m2) og ein 4-5 herbergja íbúð (100m2). Öllum íbúðum fylgir geymsla. Í húsinu er sameiginleg lesstofa, tvö þvottahús, hjóla- og vagnageymslur og samkomusalur. Aðstaða er fyrir þvottavél í íbúðum. Ísskápar og ljós fylgja öllum íbúðum. Vetrargarður er einungis ætlaður barnafólki. Leikskólinn Sólgarður er einnig í húsinu. Hann er rekinn af Félagstofnun stúdenta. Allar íbúðir Vetrargarðs hafa aðgang að tölvuneti HÍ.

Leigusamningar á Vetrargarði eru gerðir til 12 mánaða í senn þ.e. frá 1. sept. til 31. ágúst ár hvert.

Til að fá upplýsingar um verð og teikningu af íbúðum, smellið á "meira".
Vetrargarður
   
Notandi
Lykilorð
Tilvísunarnr.
FS - Stúdentagarðar • Háskólatorgi • Sæmundargötu 4 • 101 Reykjavík • Sími 570 0800 • fax 570 0709